I love you

Loksins tókst mér að skrappa síðu með henni Hafrúnu Ásu! Þetta er digi síða og svosem lítið um hana að segja ;)

From skrapp2009

Ný síða - án titils ;)

Ég fékk áskorun á mig að búa til síðu þar sem ég væri með lítið af öllu....sem sagt "less is more" og ómægod hvað það er erfit!! Ég var alveg heillengi að hugsa út hvernig hún ætti að vera og varð bókstaflega að sitja á höndunum á mér að reyna að takmarka mig við lítið skraut!!! LOL

Hér er semsagt síðan ;)
From skrapp

Talað við pabba..

Ég er búin að vera í þvílíku skrappóstuði að það er ekki fyndið, en þó náði ég að klambra saman þessari síðu í dag. Hún er byggð á skissu eftir hana Beggu ;)

From skrapp

Góðar vinkonur

Það kom að því að ég settist niður og skrappaði eina síðu...vonandi bara þá fyrstu af mjög mörgum í haust ;)
Þarna eru Anja og Helga Lan kínasystir hennar og vinkona að leika sér í rigningunni í sumar. Myndgæðin eru afleit því þetta er tekið á gemsan minn, en þetta er betra en ekkert ;)

From skrapp


Þetta er Digi síða sem er úr nokkrum kittum, grunnurinn þó úr kitti frá Jofia minnir mig ;)

Looooooooksins ný síða!

Þessi er búin að vera geðveikt erfið!! svo ekki sé meira sagt! Ég byrjaði á henni fyrir einhverjum mánuðum....er síðan búin að henda henni til og frá...reyna aftur og aftur að klára hana án árangurs, þar til í nótt!

Ég held að það sem er búið að pirra mig við þessa síðu er hversu illa pappírinn og myndirnar passa saman...Myndirnar eru svo bleikar, en pappírinn er svo haustlegur að þetta er ekki alveg að ganga....en þar sem ég var búin að líma pp+myndir niður þá ákvað ég að klára frekar en að henda þessu ;)

......þið sem kíkið hingað...ég skoara á ykkur að kvitta nú fyrir komuna!!



Skrapplift

Ég tók þátt í skemmtilegum skrapplift leik á Scrapbook.is og þetta er afraksturinn



Þetta er digi síða úr einhverju kitti sem ég fann ókeypis á netinu, en ég man ekki lengur hvar það var.... Það er svosem ekki mikið um hana að segja annað en það að þetta tók tímann sinn, svo virðist sem skrappandanum mínum hafi verið stolið um stund en ég finn að hann er smám saman að koma til baka ;)

ahahahhhahahaha!!!

Nú held ég að ég sé endanlega farin yfirum!!! Ég ákvað að henda í eina snögga síðu sem er eiginlega skrapplift frá henni Lindu á Akureyri..... Síðan var svoo fljót í fæðingu.....titillinn bara small með myndinni......og ér rosaánægð!!! HMHM nema ég var búin að skrappa þessa mynd áður...með sama titli!!! LOLOLOL

Sveimérþá.....það er of heitt hér!

Blogger Template by Blogcrowds