fimmtudagur, júní 26, 2008

Skrapplift

Ég tók þátt í skemmtilegum skrapplift leik á Scrapbook.is og þetta er afraksturinn



Þetta er digi síða úr einhverju kitti sem ég fann ókeypis á netinu, en ég man ekki lengur hvar það var.... Það er svosem ekki mikið um hana að segja annað en það að þetta tók tímann sinn, svo virðist sem skrappandanum mínum hafi verið stolið um stund en ég finn að hann er smám saman að koma til baka ;)

laugardagur, júní 07, 2008

ahahahhhahahaha!!!

Nú held ég að ég sé endanlega farin yfirum!!! Ég ákvað að henda í eina snögga síðu sem er eiginlega skrapplift frá henni Lindu á Akureyri..... Síðan var svoo fljót í fæðingu.....titillinn bara small með myndinni......og ér rosaánægð!!! HMHM nema ég var búin að skrappa þessa mynd áður...með sama titli!!! LOLOLOL

Sveimérþá.....það er of heitt hér!

miðvikudagur, júní 04, 2008

Hott hott á hesti!

Já ég kláraði loksins nýja síðu áðan. Þessi er digi eins og flest það sem ég er að gera þessa dagana ;) og núna var ég að prufa nýja tækni sem ég hef ekki notað áður, þe að klippa bakgrunninn í burtu. Ég er bara nokkuð ánægð með hana...ja annars væri ég ekki búin LOL