fimmtudagur, apríl 12, 2007

Skissa

Ég get nú ekki sagt að ég fái verðlaun í tölvugerðum skissum!! Ég hef bara ekki hugmynd um hvernig á að gera þetta í Photoshop, þannig að ég brúkaði publisher LOL og færið hana síðan yfir í photoshop og kláraði hana þar. Fyrir vikið er hún ekki nákvæmlega eins og ég hugsaði hana, hlutföllin eru kolröng en ok, þetta er bara tilraun.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Flott skissa. Ég verð að prufa hana.

hannakj sagði...

bara svo flott hjá þér!! ætla prófa hana við tækifæri.

Þórunn sagði...

endilega að leyfa mér að sjá útkomuna stelpur ;-)

Nafnlaus sagði...

Jú sæl, takk fyrir, finnst hann eiginlega fallegri eftir að ég byrjaði aðeins að kynnast honum Fróða mínum. En jú skólinn gengur vel en það er náttla bara af því að ég er af svo góðum ættum komin ;), get samt ekki beðið eftir að fara að vinna til að fá pening, susss það er ekki hægt að lifa á þessum LÍN lánum. Bið að heilsa í kotið ;)

Sandra sagði...

ú! Flott skissa!! Ég ætla að reyna þessa næst þegar ég kemst í að skrappa :D

Nafnlaus sagði...

Mjög flott skissa, ég þarf líka að prófa hana! Þær eru orðnar ansi margar skissurnar sem ég þarf að prófa! Þið eruð svo klárar að hanna skissur :)

Barbara Hafey. sagði...

Hey þú færð sko verðlaun frá mér fyrir hana þessa!
Hver veit nema ég prófi hana við tækifæri.. þ.e. ef mér gefst tækifæri á að prófa hana :D hehee..