
Haldiði ekki að hún Barbara hafi gefið mér fyrirfram afmælisgjöf!! Já ég veit, það eru enn nokkrir dagar í afmælið mitt LOL og þetta var þannig innpakkað að ég varð að opna strax (O_O) LOL (ég meina hver bíður í marga mánuði með að opna pakka!! ) Þetta voru svoooo fallegir stimplar! Ég var búin að reyna að kaupa þá á ebay...en hafði ekki tekist (örugglega af því Barbara var búin að ákveða að gefa mér þá LOL). Þetta er stimplasett frá
StampinUp sem er einungis hægt að fá sem gestgjafagjöf.
Ég fór svo til Rósar á mánudagskvöldið og skrappaði með henni og Ingu, vinkonu hennar og það var rosalega gaman! Gerði slatta af kortun með nýju fínu stimplunum mínum (og Rós á sko enga svoleiðs LOL) en tölvan er enþá biluð og ég finn ekki myndavélina til að taka mynd....Var að reyna að taka mynd með gemsanum og senda í tölvuna..en það gekk ekki heldur...
Annars fengum við tölvuna heim í gær...átti að vera komin í lag...en ég var nú ekki búin að vera lengi í henni og dást að því hvað hún væri orðin hröð og fín þegar hún drap á sér...(O_O)...ræsti sig svo upp aftur...og drap aftur á sér áður en hún var búin að klára...arggggg...ég þoli ekki að vera svona tölvulaus!!! Er enþá með fartölvu úr skólanum, eins gott...annars mundi ég bilast!
Allavega, verð bara að láta mér nægja að tala um skrapp hér, reyni að setja inn myndir um leið og Andri kemur heim með myndavélina ;-)